Hvað kostar bíllinn þinn í raun?
Flestir vanmeta hvað það kostar að eiga bíl. Stilltu hvernig þú vilt ferðast með rafskútum, deilibílum og leigubílum Hopp og sjáðu hvað þú gætir sparað.
Sækja appið Hoppaðu beint á réttan staðReiknaðu sparnaðinn
Hvernig viltu hoppa?
Fjöldi ferða á viku með hverri þjónustu.
Bíllinn sem þú myndir annars eiga
Kostnaðarliðir byggðir á samantekt FÍB, uppfærðir með gjöldum ársins 2026.
Ítarlegar stillingar
Hvert fara peningarnir?
Eldsneytið er aðeins lítill hluti. Stærstu liðirnir eru þeir sem þú sérð aldrei á kassanum: verðrýrnun og vextir af bílaláni.
Algengar spurningar
Hvernig er kostnaður við að eiga bíl reiknaður?
Kostnaðarliðirnir byggja á árlegri samantekt Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) um rekstrarkostnað bifreiða: verðrýrnun, tryggingar, bifreiðagjald, orka, kílómetragjald, viðhald, hjólbarðar, skoðun, þrif og bílastæði. Gjöld og verð eru uppfærð fyrir 2026. Ólíkt FÍB reiknum við vexti af bílaláni í stað tapaðra fjármagnstekna af öllu verðmæti bílsins, og verðrýrnun sem hlutfall af núverandi verðmæti hans. Þú getur breytt hverjum lið undir „Ítarlegar stillingar“.
Hvað kostar að hoppa?
Rafskútur kosta 115 kr. í startgjald og 45 kr. á mínútu. Deilibílar kosta 650 kr. í startgjald og 65 kr. á mínútu. Ferð með leigubíl í Economy sem tekur 11 mínútur kostar um 2.287 kr. og 45 mínútna ferð um 16.665 kr. Lágmarksgjald fyrir ferð er 1.757 kr.
Hvað eru Hopp passar?
Passar eru mínútupakkar sem þú kaupir í appinu. 300 mínútur á rafskútum kosta 5.490 kr. og 300 mínútur á deilibílum kosta 13.990 kr., og báðir gilda í mánuð. Startgjaldið fellur niður þegar passi er notaður. Reiknivélin velur sjálfkrafa hagstæðustu samsetninguna fyrir notkunina þína.
Eru þetta nákvæmar tölur?
Nei, þetta er áætlun byggð á meðaltölum. Raunkostnaður getur verið breytilegur eftir bíl, akstri, verðlagi og því hvernig þú notar Hopp.