Reiknivél

Hvað kostar bíllinn þinn í raun?

Flestir vanmeta hvað það kostar að eiga bíl. Stilltu hvernig þú vilt ferðast með rafskútum, deilibílum og leigubílum Hopp og sjáðu hvað þú gætir sparað.

Sækja appið Hoppaðu beint á réttan stað

Reiknaðu sparnaðinn

Hvernig viltu hoppa?

Fjöldi ferða á viku með hverri þjónustu.

5ferðir á viku
10 mín.
Um 0 kr. á ferð
2ferðir á viku
30 mín.
Um 0 kr. á ferð
1ferð á viku
11 mín.
Um 0 kr. á ferð í Economy

Bíllinn sem þú myndir annars eiga

Byggt á aðferðafræði FÍB um rekstrarkostnað bifreiða.

15.000km
7.000.000kr.
Ítarlegar stillingar
Sundurliðun

Hvert fara peningarnir?

Eldsneytið er aðeins lítill hluti. Stærstu liðirnir eru þeir sem þú sérð aldrei á kassanum: verðrýrnun og vextir af bílaláni.

Samtals á ári0 kr.

Algengar spurningar

Hvernig er kostnaður við að eiga bíl reiknaður?

Við fylgjum aðferðafræði Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) um árlegan rekstrarkostnað bifreiða: verðrýrnun, vexti af bílaláni, tryggingar, bifreiðagjald, orku, kílómetragjald, viðhald, hjólbarða, skoðun, þrif og bílastæði. Þú getur breytt hverjum lið undir „Ítarlegar stillingar“.

Hvað kostar að hoppa?

Rafskútur kosta 115 kr. í startgjald og 45 kr. á mínútu. Deilibílar kosta 650 kr. í startgjald og 65 kr. á mínútu. Ferð með leigubíl í Economy sem tekur 11 mínútur kostar um 2.287 kr. og 45 mínútna ferð um 16.665 kr. Lágmarksgjald fyrir ferð er 1.757 kr.

Hvað eru Hopp passar?

Passar eru mínútupakkar sem þú kaupir í appinu. 300 mínútur á rafskútum kosta 5.490 kr. og 300 mínútur á deilibílum kosta 13.990 kr., og báðir gilda í mánuð. Startgjaldið fellur niður þegar passi er notaður. Reiknivélin velur sjálfkrafa hagstæðustu samsetninguna fyrir notkunina þína.

Eru þetta nákvæmar tölur?

Nei, þetta er áætlun byggð á meðaltölum. Raunkostnaður getur verið breytilegur eftir bíl, akstri, verðlagi og því hvernig þú notar Hopp.